Að minnsta kosti einn er látinn eftir að eldur kom upp í verslunarmiðstöðinni Mega Khímkí í úthverfi Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í nótt.

Myndskeið af vettvangi hafa meðal annars sýnt fólk hlaupa út úr miðstöðinni á sama tíma og eldurinn læsti sig í bygginguna og hún hrundi að hluta. Þá má sjá á myndskeiðinu hér að ofan hvar sprengingar verða í hluta byggingarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti almannavarna í Rússlandi var eldurinn búinn að breiða mikið úr sér og náði hann yfir svæði á stærð við fótboltavöll eða um sjö þúsund fermetra.
Slökkviliðið náði að sögn að slökkva eldinn klukkan 10.45 í morgni að staðartíma, eða klukkan 7.45 að íslenskum tíma.
Verslunarmiðstöðin er í um sjö kílómetra fjarlægð frá alþjóðaflugvelli Moskvuborgar, Sjeremetjevó.
Á áttunda tug slökkviliðsmanna og 20 dælubílar voru á vettvangi þegar mbl.is greindi frá eldsvoðanum í morgun, en erfiðlega mun hafa gengið að ná tökum á eldsvoðanum sökum hönnunar byggingarinnar.