Vissi ekki að verið væri að brjóta lög

Vissi ekki að verið væri að brjóta lög

Bor­is John­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, segir enginn gögn sýna fram á að hann hafi fengið viðvörun í sambandi við veisluhöld í Downingstræti á meðan ströng sóttvarnarlög voru í gildi í landinu. 

Vissi ekki að verið væri að brjóta lög

Veislu­höld í Down­ingstræti | 21. mars 2023

Bor­is John­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra Bret­lands.
Bor­is John­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra Bret­lands. AFP/Leon Neal

Bor­is John­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, segir enginn gögn sýna fram á að hann hafi fengið viðvörun í sambandi við veisluhöld í Downingstræti á meðan ströng sóttvarnarlög voru í gildi í landinu. 

Bor­is John­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, segir enginn gögn sýna fram á að hann hafi fengið viðvörun í sambandi við veisluhöld í Downingstræti á meðan ströng sóttvarnarlög voru í gildi í landinu. 

Í 52 blaðsíðna yfirlýsingu Johnson, sem send var á breska þingnefnd og hefur nú verið gerð opinber, viðurkennir Johnson að hann hafi afvegaleitt þingið með því að segja að öllum reglum og fyrirmælum hafi verið fylgt eftir er afmælisveisla hans var haldinn í Downingstræti árið 2020. 

„En þegar að þær yfirlýsingar voru gerðar, þá voru þær settar fram í góðri trú og á grundvelli þeirra upplýsinga sem ég hafði á þeim tíma,“ sagði í yfirlýsingu Johnson. 

Yfirlýsingin hefst þó á því að hann segist bera alla ábyrgð á því sem gerðist í Downingstræti á meðan hann gegndi embætti forsætisráðherra. 

Brot á reglum ekki „augljós“

Í bráðabirgðaskýrslu, sem var birt fyrr í þess­um mánuði í kjöl­far átta mánaða vinnu, seg­ir þingnefnd­in að þau gögn sem hún hafi und­ir hönd­um grafi und­an þeim full­yrðing­um John­sons fyr­ir fullttrúa­deild þings­ins að hann sé blásak­laus.

Þá seg­ir að gögn bendi enn frem­ur til þess að full­trúa­deild þings­ins hafi í nokk­ur skipti verið af­vega­leidd.

Johnson segir í yfirlýsingunni að nefndin geri ráð fyrir að það hafi átt að vera „augljóst“ að ekki væri verið að fylgja eftir reglum með veisluhöldunum. Þá segir hann að starfsfólk í Downingstræti sem nefndin ræddi við hafi einnig ekki vitað að verið væri að brjóta sóttvarnarlög. Því hefði málið ekki verið „augljóst“.

Í yfirlýsingu þingnefndarinnar, sem gefin var út í kjölfar þess að yfirlýsing Johnson var opinberuð, segir að engar nýjar upplýsingar séu í yfirlýsingu fyrrverandi forsætisráðherrans. 

John­son mun mæta á op­inn fund þingnefndarinnar klukkan 14 á morgun. 

Sjö manna þing­nefnd mun að lok­um taka end­an­lega ákvörðun í mál­inu og ákveða næstu skref. Verði John­son fund­inn sek­ur þá kem­ur til greina að víkja hon­um af þingi.

mbl.is