Veiðidögum á grásleppu fjölgað um tíu

Grásleppuveiðar | 17. maí 2023

Veiðidögum á grásleppu fjölgað um tíu

Fiskistofa mun fjölga veiðidögum hjá þeim grásleppubátum sem eru enn á veiðum eða eiga eftir að fara á grásleppuveiðar. Matvælaráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem tók gildi í gær og fjölgar hún veiðidögum úr 35 í 45.

Veiðidögum á grásleppu fjölgað um tíu

Grásleppuveiðar | 17. maí 2023

Grásleppubátarnir hófu veiðar 20. mars. Veiðidögum hefur nú veroð fjölgað …
Grásleppubátarnir hófu veiðar 20. mars. Veiðidögum hefur nú veroð fjölgað um tíu í 45. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Fiskistofa mun fjölga veiðidögum hjá þeim grásleppubátum sem eru enn á veiðum eða eiga eftir að fara á grásleppuveiðar. Matvælaráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem tók gildi í gær og fjölgar hún veiðidögum úr 35 í 45.

Fiskistofa mun fjölga veiðidögum hjá þeim grásleppubátum sem eru enn á veiðum eða eiga eftir að fara á grásleppuveiðar. Matvælaráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem tók gildi í gær og fjölgar hún veiðidögum úr 35 í 45.

Samkvæmt skráningu Fiskistofu hefur hefur aðeins verið landað rét rúmlega 2.700 tonnum af grásleppu frá því að veiðitímabilið hófst í mars, en hámarksafli veiðitímabilsins er 4.411 tonn. Það á því eftir að veiða um 39% af þeim afla sem heimild er fyrir.

Fram kemur í tilkynningu á vef Fiskistofu að þeir grásleppubátar sem þegar hafa lokið 35 dögum á veiðum og eru ekki búnir að fá strandveiðileyfi get virkjað grásleppuleyfi í 10 daga með því að hafa samband við stofnunina.

Þeir bátar sem hafa hafið strandveiðar geta hins vegar ekki framlengt grásleppuleyfi sín.

mbl.is