Gripið og greitt ný sjálfafgreiðslulausn í Bónus

Daglegt líf | 25. maí 2023

Gripið og greitt ný sjálfafgreiðslulausn í Bónus

Bónus kynnti til leiks Gripið og greitt nýja og þægilega sjálfsafgreiðslulausn í morgun. Flest erum við orðin vön sjálfsafgreiðslukössum við útgang verslana, en Gripið og greitt gengur skrefinu lengra. Viðskiptavinir fá afhentan léttan og handhægan skanna við innganginn og geta því skannað vörurnar sínar beint ofan í pokann á leið sinni í gegnum verslunina sem einfaldar allt ferlið til muna og spara ómældan tíma.

Gripið og greitt ný sjálfafgreiðslulausn í Bónus

Daglegt líf | 25. maí 2023

Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus segir að þessi lausn eigi ekki …
Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus segir að þessi lausn eigi ekki að leysa aðrar afgreiðslulausnir af hólmi, heldur sé um að ræða nýja þjónustuleið. Ljósmynd/Guðmundur Marteinsson

Bónus kynnti til leiks Gripið og greitt nýja og þægilega sjálfsafgreiðslulausn í morgun. Flest erum við orðin vön sjálfsafgreiðslukössum við útgang verslana, en Gripið og greitt gengur skrefinu lengra. Viðskiptavinir fá afhentan léttan og handhægan skanna við innganginn og geta því skannað vörurnar sínar beint ofan í pokann á leið sinni í gegnum verslunina sem einfaldar allt ferlið til muna og spara ómældan tíma.

Bónus kynnti til leiks Gripið og greitt nýja og þægilega sjálfsafgreiðslulausn í morgun. Flest erum við orðin vön sjálfsafgreiðslukössum við útgang verslana, en Gripið og greitt gengur skrefinu lengra. Viðskiptavinir fá afhentan léttan og handhægan skanna við innganginn og geta því skannað vörurnar sínar beint ofan í pokann á leið sinni í gegnum verslunina sem einfaldar allt ferlið til muna og spara ómældan tíma.

„Það er mikið hagræði í því fyrir viðskiptavininn að þurfa ekki að meðhöndla sömu vöruna mörgum sinnum heldur skanna beint í pokann – handtökunum fækkar því til muna“, segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus.

Baldur Ólafsson markasstjóri er alsæll með þessa nýju sjálfsafgreiðslulauns Gripið …
Baldur Ólafsson markasstjóri er alsæll með þessa nýju sjálfsafgreiðslulauns Gripið og Greitt. mbl.is/Arnþór Birkisson

Stærsta innleiðing sem Bónus hefur ráðist í

Steinar J. Kristjánsson, upplýsingatæknistjóri Bónus, hefur leitt verkefnið áfram en að því koma innlendir og erlendir aðilar og hefur vinna við þetta staðið yfir síðustu mánuði. Að sögn Guðmundar er Gripið og greitt ein stærsta innleiðing sem Bónus hefur ráðist í og ætlar Bónus að innleiða lausnina í áföngum.

 „Við byrjum í áföngum, prófum þetta fyrst á Smáratorgi og svo detta búðirnar inn ein af annarri næstu mánuði ef viðskiptavinir taka vel í þetta. Þessi lausn þekkist víða í Evrópu og hefur gefið góða raun,“ segir Baldur.

Nýju skannarnir taka sig vel út á Smáratorginu.
Nýju skannarnir taka sig vel út á Smáratorginu. mbl.isArnþór Birkisson

 Nýja kerfið fækkar sporum

„Þetta nýja kerfi virkar einfaldlega þannig að fólk kemur að tækjavegg í búðinni, notar Gripið og greitt vildarkort, sem viðskiptavinir nálgast í nýju Bónus appi, og fær úthlutað skanna. Skanninn fer vel í hendi en einnig er hægt að festa hann á innkaupakerru. Í grænmetis- og ávaxtakæli er sérstök snjallvog þar sem vörur eru vigtaðar og viðskiptavinir greiða eftir þyngd en ekki fjölda. Þegar verslunarferð lýkur fara viðskiptavinir á sérstakt Gripið og greitt greiðslusvæði þar sem gengið er frá greiðslu. Þetta einfaldar allt, fækkar sporum og tíminn nýtist mun betur, ferðin í verslunina tekur mun minni tíma og verður skemmtilegri,“ segir Guðmundur,

„Gripið og greitt byggir á trausti milli Bónus og viðskiptavinar og þannig viljum við hafa það“, segir Guðmundur. „Við fylgjumst þó með til öryggis og tökum stikkprufur. Viðskiptavinir geta átt von á því að starfsmaður framkvæmi svokallað þjónustueftirlit þar sem innkaup eru skoðuð að hluta eða í heild á greiðslusvæði. Þjónustueftirlitið á ekki að vera íþyngjandi fyrir viðskiptavini okkar og bara eðlilegur hluti af ferlinu, en afar mikilvægt til að tryggja að lausnin virki eins og hún á að gera,“ segir Guðmundur.

Samhliða Gripið og greitt er Bónus að gefa út sitt fyrsta app þar sem viðskiptavinir munu geta séð vöruframboðið, búið til innkaupalista sem hægt er að deila með vinum og vandamönnum og séð greiðslusögu sína á einfaldan hátt.

„Við erum rétt að byrja og sjáum fyrir okkur að þróa appið áfram í takt við þarfir viðskiptavina okkar og bæta þjónustuna við þá enn frekar. Við bindum miklar vonir við Gripið og greitt og gerum ráð fyrir að fólk muni taka þessum nýja valkosti fagnandi“ segir Guðmundur.

Hér má finna nýju skanna sem eru algjör bylting fyrir …
Hér má finna nýju skanna sem eru algjör bylting fyrir viðskiptavini og munu stytta og einfalda verslunarferðina og gera hana skemmtilegri. Ljósmynd/Bónus
mbl.is