Ægir bíður eftir drætti

Landhelgisgæslan | 22. ágúst 2023

Ægir bíður eftir drætti

Þau tímamót urðu í skipasögu landsins í fyrrinótt að gamla varðskipið Týr sigldi af stað í sína hinstu ferð um íslenska lögsögu.

Ægir bíður eftir drætti

Landhelgisgæslan | 22. ágúst 2023

Gamla varðskipið Týr hefur kvatt Ísland og haldið á ný …
Gamla varðskipið Týr hefur kvatt Ísland og haldið á ný mið til Grikklands. Eftir stendur Ægir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þau tímamót urðu í skipasögu landsins í fyrrinótt að gamla varðskipið Týr sigldi af stað í sína hinstu ferð um íslenska lögsögu.

Þau tímamót urðu í skipasögu landsins í fyrrinótt að gamla varðskipið Týr sigldi af stað í sína hinstu ferð um íslenska lögsögu.

Eins og fram hefur komið var skipið selt nýjum eigendum í Grikklandi og þangað liggur leið skipsins undir nýju heiti, Poseidon V.

Týr hafði legið langa hríð við Skarfabakka, ásamt systurskipi sínu, Ægi, eftir að hafa gegnt hlutverkum sínum sem varðskip Landhelgisgæslunnar um árabil, allt frá þorskastríðunum hatrömmu við Breta. Var Ægir einnig seldur til sömu eigenda í Grikklandi.

Ægir fékk nafnið Oceanus V. og er nú einn eftir við Skarfabakka, með laskaða vél. Það verður þó ekki lengi en stefnt er að því að draga skipið til Grikklands í lok þessa mánaðar. Skipin tvö voru seld fyrir 51 milljón kr.

mbl.is