Engar kosningar í Úkraínu á næsta ári

Úkraína | 8. nóvember 2023

Engar kosningar í Úkraínu á næsta ári

Volodimír Selenskí telur ekki tímabært að boða til kosninga á næsta ári. Herlög ríkja í Úkraínu sökum stríðsins og fyrir vikið falla strangt til tekið allar kosningar niður í landinu, þar á meðal forsetakosningarnar sem áttu að fara fram á næsta ári.

Engar kosningar í Úkraínu á næsta ári

Úkraína | 8. nóvember 2023

Selenskí segir það ekki tímabært að ganga til kosninga.
Selenskí segir það ekki tímabært að ganga til kosninga. AFP/Yves Herman

Volodimír Selenskí telur ekki tímabært að boða til kosninga á næsta ári. Herlög ríkja í Úkraínu sökum stríðsins og fyrir vikið falla strangt til tekið allar kosningar niður í landinu, þar á meðal forsetakosningarnar sem áttu að fara fram á næsta ári.

Volodimír Selenskí telur ekki tímabært að boða til kosninga á næsta ári. Herlög ríkja í Úkraínu sökum stríðsins og fyrir vikið falla strangt til tekið allar kosningar niður í landinu, þar á meðal forsetakosningarnar sem áttu að fara fram á næsta ári.

„Við þurfum að ákveða hvort nú sé tími varnaraðgerða eða sóknar, sú ákvörðun mun hafa í för með sér örlög ríkisins og þegna þess,“ sagði forsetinn í daglegu ávarpi sínu á mánudag.

Þar lagði hann einnig áherslu á að þjóðin standi saman.

mbl.is