Hvenær er best að taka fermingarmyndir?

Ferming | 8. febrúar 2024

Hvenær er best að taka fermingarmyndir?

Fermingardagurinn er eftirminnilegur í lífi margra og því algengt að fjölskyldur festi daginn á filmu með fermingarmyndatöku. En hvenær er best að fara í fermingarmyndatöku?

Hvenær er best að taka fermingarmyndir?

Ferming | 8. febrúar 2024

Ljósmynd/Unsplash/Getty

Fermingardagurinn er eftirminnilegur í lífi margra og því algengt að fjölskyldur festi daginn á filmu með fermingarmyndatöku. En hvenær er best að fara í fermingarmyndatöku?

Fermingardagurinn er eftirminnilegur í lífi margra og því algengt að fjölskyldur festi daginn á filmu með fermingarmyndatöku. En hvenær er best að fara í fermingarmyndatöku?

Gunnar Freyr Steinsson ljósmyndari birti myndband á dögunum á TikTok þar sem hann fór yfir hentug ráð fyrir fermingarmyndatökuna.  

„Það er í góðu lagi að taka fermingarmyndir allt árið um kring en helst ekki á fermingardaginn sjálfan,“ segir Gunnar í byrjun myndbandsins. 

„Um það bil versta hugmynd í heimi“

„Ég lærði mjög fljótt að fermingarmyndatökur á fermingardaginn sjálfan, til dæmis á milli athafnar og veislu, er um það bil versta hugmynd í heimi. Það er bara stress, ekkert annað. Athöfninni seinkar, það þarf að drífa sig í veislusalinn á undan gestunum og fleira svoleiðis, og enginn nýtur þess að vera í einhverjum spreng að reyna að drífa myndatökuna af.

Mér finnst miklu skynsamlegra að taka myndirnar nokkrum dögum eða vikum fyrir ferminguna, eða jafnvel að bíða bara með hana, jafnvel fram á sumar þegar allt er oðið fallega grænt,“ segir hann. 

„Ef þið viljið myndatöku fyrir fermingu þá er mjög gott að hafa hana sama dag og prufugreiðslan er gerð – þegar það á við. En ef til stendur að geyma myndatökuna, þá þarf bara að krossa fingur og vona að fermingarbarnið vaxi ekki upp úr fermingarfötunum í millitíðinni. 

En það hvenær árs fermingarmyndatakan fer fram skiptir í sjálfu sér engu máli – það eru allar árstíðir fallegar,“ bætir hann við. 

@gunnarfreyrphotography Hvenær er best að taka fermingarmyndir? Bókaðu myndatöku á gunnarfreyr.com Ertu með spurningu tengda ljósmyndun? Sendu á mig og ég reyni að svara hér. #faq #ljosmyndari #ljosmyndun #ferming #fermingarmyndir #fermingar #gunnarfreyr #gunnarfreyrphotography #spurningar #spurningumsvarad #spurningarogsvor ♬ original sound - Gunnar Freyr Photography
mbl.is