„Ekki kalla mig Þorstein“

Dagmál | 25. mars 2024

„Ekki kalla mig Þorstein“

„Við vissum að það væri nýr þjálfari að mæta á æfingu og maður þekkti hann ekki mikið enda hafði hann ekki þjálfað kvennalið áður,“ sagði knattspyrnukonan Rakel Hönnudóttir í Dagmálum.

Rakel, sem er 35 ára gömul, á að baki 103 A-landsleiki fyrir Ísland en hún lék síðast í efstu deild sumarið 2020 og hefur ekki hug á því að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn.

Maður fárra orða

Rakel lék með Breiðabliki þegar Þorsteinn Halldórsson, núverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, tók við Blikum árið 2015 en hann gerði liðið að Íslandsmeisturum sama ár eftir að liðið hafði verið í talsverðu basli árin á undan.

„Hann mætti inn í klefa til okkar,“ sagði Rakel.

Ég heiti Steini, ekki kalla mig Þorstein, kalliði mig bara Steina sagði hann við okkur.

Eigum við ekki að koma út á völl bara sagði hann svo við okkur og mér fannst þetta mjög fyndið því hann sagði ekkert meira en þetta. Maður fárra orða,“ sagði Rakel meðal annars.

Viðtalið við Rakel í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Þorsteinn Halldórsson.
Þorsteinn Halldórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is