Upplifði fósturlát á fyrstu meðgöngu

Frægar fjölskyldur | 26. mars 2024

Upplifði fósturlát á fyrstu meðgöngu

Bandaríska leikkonan Anne Hathaway upplifði fósturlát þegar hún gekk með sitt fyrsta barn árið 2015. Á þeim tíma fór leikkonan með hlutverk í einleiknum Grounded á Broadway. Hathaway rifjaði upp þetta átakanlega tímabil í nýlegu viðtali við lífstílstímaritið Vanity Fair

Upplifði fósturlát á fyrstu meðgöngu

Frægar fjölskyldur | 26. mars 2024

Anne Hathaway ásamt eiginmanni sínum Adam Shulman.
Anne Hathaway ásamt eiginmanni sínum Adam Shulman. AFP

Bandaríska leikkonan Anne Hathaway upplifði fósturlát þegar hún gekk með sitt fyrsta barn árið 2015. Á þeim tíma fór leikkonan með hlutverk í einleiknum Grounded á Broadway. Hathaway rifjaði upp þetta átakanlega tímabil í nýlegu viðtali við lífstílstímaritið Vanity Fair

Bandaríska leikkonan Anne Hathaway upplifði fósturlát þegar hún gekk með sitt fyrsta barn árið 2015. Á þeim tíma fór leikkonan með hlutverk í einleiknum Grounded á Broadway. Hathaway rifjaði upp þetta átakanlega tímabil í nýlegu viðtali við lífstílstímaritið Vanity Fair

„Þetta gekk ekki upp í fyrstu atrennu. Ég var að leika í sýningu á þessum tíma og þurfti að fæða barn á sviðinu á hverju kvöldi. Það var rosalega erfitt,“ sagði Hathaway sem hélt fósturlátinu vandlega leyndu frá vinum og vandamönnum í fyrstu. 

„Það var hálf ómögulegt að halda þessu út af fyrir sig og láta ekki á neinu bera á sviðinu. Það fékk mig til að segja mínum allra nánustu frá því sem var í gangi,“ útskýrði leikkonan. 

Hathaway varð ófrísk nokkrum mánuðum eftir fósturlátið og eignaðist sitt fyrsta barn árið 2016. Í dag er leikkonan tveggja barna móðir, en hún og eiginmaður hennar Adam Shulman eiga tvo unga syni, Jonathan og Jack. 

mbl.is