Þetta eru bestu vinir fræga fólksins á Íslandi

Frægar fjölskyldur | 14. mars 2024

Þetta eru bestu vinir fræga fólksins á Íslandi

Gæludýr eru ómissandi partur af fjölskyldu margra frægra Íslendinga. Vissir þú að Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, ætti ofurkrúttlegan hund af tegundinni Pug? En að Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðlakona, ætti tvo glæsilega strýhærða langhunda?

Þetta eru bestu vinir fræga fólksins á Íslandi

Frægar fjölskyldur | 14. mars 2024

Íslenskar stjörnur elska gæludýr!
Íslenskar stjörnur elska gæludýr! Samsett mynd

Gæludýr eru ómissandi partur af fjölskyldu margra frægra Íslendinga. Vissir þú að Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, ætti ofurkrúttlegan hund af tegundinni Pug? En að Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðlakona, ætti tvo glæsilega strýhærða langhunda?

Gæludýr eru ómissandi partur af fjölskyldu margra frægra Íslendinga. Vissir þú að Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, ætti ofurkrúttlegan hund af tegundinni Pug? En að Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðlakona, ætti tvo glæsilega strýhærða langhunda?

Fjölskylduvefurinn tók saman lista yfir nokkra fræga Íslendinga sem eiga gæludýr.

Jökull Júlíusson

Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, á ofurkrúttlegan hund af tegundinni Pug ásamt unnustu sinni, Telmu Fanneyju Magnúsdóttur. 

View this post on Instagram

A post shared by JJ Julius Son (@julius_son)

Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson

Hjónin og hönnunartvíeykið Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson eiga glæsilegan hund af tegundinni Husky. Hann passar fullkomlega inn í fagurfræði þeirra!

Sunneva Einarsdóttir

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir og kærasti hennar Benedikt Bjarnason kynntu á dögunum nýjan fjölskyldumeðlim sem sprengdi alla krúttskala – Golden Retriver-hvolpinn Romeo. Fyrir eiga þau hinn ástsæla Bruce sem er af tegundinni Tibetian Spaniel og í miklu uppáhaldi hjá fylgjendum Sunnevu.

Inga Lind Karlsdóttir

Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðla, á tvo strýhærða langhunda sem bræða alla í kringum sig. 

Bubbi Morthens

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og hundurinn hans, sem er af hinni fallegu tegund Shetland sheepdog, eru dugleg að fara í göngur saman enda eru þau búsett skammt frá Gróttu sem er frábær útivistarstaður.

Birta Hlín Sigurðardóttir

Samfélagsmiðlastjarnan Birta Hlín Sigurðardóttir og unnusti hennar, Helgi Jónsson, eru búsett í Kaupmannahöfn. Þau eiga ofursæta kisu af tegundinni British Shorthair.

View this post on Instagram

A post shared by Birta Hlin (@birtahlin)

Aron Can 

Tónlistarmaðurinn Aron Can og kærasta hans Erna María Björnsdóttir eiga töffaralegan mjóhund af tegundinni Whippet.

Jóhannes Haukur Jóhannesson

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur tengst afar sterkum böndum við hundinn sem hann var ekki svo viss um að vilja fá inn á heimilið til að byrja með. Svona eru áhrifin!

Hulda Ósmann

Hulda og Jón Ósmann eru búsett á Tenerife á Spáni, en þar hafa þau komið sér vel fyrir ásamt fjölskyldu sinni og tignarlegum hundi af tegundinni Standard Poodle. 

Birgitta Líf Björnsdóttir

Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og markaðsstjóri World Class, á tvo ofurflotta franska bolabíta.

Magnús Scheving

Athafnamaðurinn Magnús Scheving á traustan vin af tegundinni Labrador. 

Jón Gnarr

Jón Gnarr er mikill hundavinur og er duglegur að ganga með glæsilega hundinn sinn sem er af tegundinni White Shepherd. 

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

Embla Wigum

Förðunarfræðingurinn Embla Wigum er búsett í Lundúnum, en hún á afar fagra kisu sem virðist vera af tegundinni Ragdoll. 

mbl.is