Hækka garðana með hrauni

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 27. mars 2024

Hækka garðana með hrauni

Unnið er dag og nótt við að hækka varnargarðana norðaustan við Grindavík þar sem hraunið hefur runnið upp að mannvirkinu. Stefnt er að því að hækka norðausturhlutann um fjóra metra að jafnaði, en sá hluti garðanna sem myndar horn verður hækkaður um fimm til sex metra.

Hækka garðana með hrauni

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 27. mars 2024

Litið yfir norðausturhluta varnargarða við Grindavík. Til stendur að hækka …
Litið yfir norðausturhluta varnargarða við Grindavík. Til stendur að hækka þá um fjóra metra, en hornið um fimm til sex metra. Verið er að nota hraun til bráðabirgða við hækkunina. mbl.is/Kristinn Magnússon

Unnið er dag og nótt við að hækka varnargarðana norðaustan við Grindavík þar sem hraunið hefur runnið upp að mannvirkinu. Stefnt er að því að hækka norðausturhlutann um fjóra metra að jafnaði, en sá hluti garðanna sem myndar horn verður hækkaður um fimm til sex metra.

Unnið er dag og nótt við að hækka varnargarðana norðaustan við Grindavík þar sem hraunið hefur runnið upp að mannvirkinu. Stefnt er að því að hækka norðausturhlutann um fjóra metra að jafnaði, en sá hluti garðanna sem myndar horn verður hækkaður um fimm til sex metra.

Þetta segir Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís. Að sögn Arnars er um fyrirbyggjandi aðgerð að ræða en ekki sé talið víst að hraunið skríði yfir garðana í yfirstandandi eldgosi.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Á meðan verið er að ryðja veg til þess að tryggja flutningsleið innan garðanna hefur hraun verið notað til þess að hækka varnarmannvirkin til bráðabirgða.

Þá er enn fremur verið að meta hvort hækka þurfi garðana austan við Grindavík.

Innan við varnargarðanna er verið að ryðja veg til þess …
Innan við varnargarðanna er verið að ryðja veg til þess að trygjja flutningsleiðir. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is