„Mallar áfram í þremur gígum“

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 27. mars 2024

„Mallar áfram í þremur gígum“

Litlar breytingar hafa orðið í eldgosinu við Sundhnúkagíga í nótt en gosið hefur nú staðið yfir í ellefu daga eða frá 16. mars.

„Mallar áfram í þremur gígum“

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 27. mars 2024

Gosið við Sundhnúkagíga hófst 16. mars.
Gosið við Sundhnúkagíga hófst 16. mars. mbl.is/Árni Sæberg

Litlar breytingar hafa orðið í eldgosinu við Sundhnúkagíga í nótt en gosið hefur nú staðið yfir í ellefu daga eða frá 16. mars.

Litlar breytingar hafa orðið í eldgosinu við Sundhnúkagíga í nótt en gosið hefur nú staðið yfir í ellefu daga eða frá 16. mars.

Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að litlar breytingar hafa orðið á gosinu frá því í gær. 

„Það mallar áfram í þremur gígum með svipuðum krafti og í gær,“ segir Lovísa en nyrsti gígurinn er sá stærsti. 

Hún segir að það hafi orðið aðeins hækkun á gildum brennisteinsdíoxíðs í nótt og í morgun en ekki nóg til að vera með viðbragð yfir því.

mbl.is