Boða verkfallsaðgerðir

Kjaraviðræður | 29. apríl 2024

Boða verkfallsaðgerðir

Samninganefndir Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu ákváðu á fundi gær að boða til yfirvinnu- og þjálfunarbanns ásamt tímabundnum og tímasettum aðgerðum við öryggisleit og farþegaflutninga, eftir að samtöl stéttarfélaganna við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Isavia ohf. reyndust árangurslaus.

Boða verkfallsaðgerðir

Kjaraviðræður | 29. apríl 2024

Kröfurnar snúa fyrst og fremst að því að ná fram …
Kröfurnar snúa fyrst og fremst að því að ná fram samræmingu á réttindum milli gildandi kjarasamninga innan Isavia og dótturfélaga, að því er segir í tilkynningu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samninganefndir Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu ákváðu á fundi gær að boða til yfirvinnu- og þjálfunarbanns ásamt tímabundnum og tímasettum aðgerðum við öryggisleit og farþegaflutninga, eftir að samtöl stéttarfélaganna við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Isavia ohf. reyndust árangurslaus.

Samninganefndir Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu ákváðu á fundi gær að boða til yfirvinnu- og þjálfunarbanns ásamt tímabundnum og tímasettum aðgerðum við öryggisleit og farþegaflutninga, eftir að samtöl stéttarfélaganna við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Isavia ohf. reyndust árangurslaus.

Fram kemur í tilkynningu, að samningaviðræður hafi staðið síðan í september 2023 og deilunni hafi verið vísað til ríkissáttasemjara þann 8. apríl.

„Í gær 28. apríl var orðið ljóst að ekki væri lengra komist í samtalinu við SA fyrir hönd Isavia ohf.

Á félagsfundi sem haldin var þann 11. apríl sl. var samþykkt einhuga meðal félagsfólks að reyna með aðgerðum að ná fram kröfum félaganna. Kröfurnar snúa fyrst og fremst að því að ná fram samræmingu á réttindum milli gildandi kjarasamninga innan Isavia ohf. og dótturfélaga. Einnig snúa kröfurnar að því að ná fram leiðréttingu á framkvæmd kjarasamninga frá síðustu samningalotu,“ segir í tilkynningu. 

Þá segir að félagsfólk stéttarfélaganna tveggja muni greiða atkvæði um aðgerðir sem eiga að hefjast 9. maí, að gefnu samþykki félagsfólks.

Atkvæðagreiðsla um aðgerðir hófst í dag kl. 13:00 og lýkur kl. 13:00 fimmtudaginn 2. maí, segir enn fremur. 

mbl.is