Jón Gnarr lentur á Ísafirði

Forsetakosningar 2024 | 29. apríl 2024

Jón Gnarr lentur á Ísafirði

Forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr lenti fyrir skömmu á Ísafjarðarflugvelli en í kvöld mætir hann á borgarafund Morgunblaðsins.

Jón Gnarr lentur á Ísafirði

Forsetakosningar 2024 | 29. apríl 2024

Jón Gnarr er lentur á Ísafirði fyrir borgarafund Morgunblaðsins.
Jón Gnarr er lentur á Ísafirði fyrir borgarafund Morgunblaðsins. Ljósmynd/Aðsend

Forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr lenti fyrir skömmu á Ísafjarðarflugvelli en í kvöld mætir hann á borgarafund Morgunblaðsins.

Forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr lenti fyrir skömmu á Ísafjarðarflugvelli en í kvöld mætir hann á borgarafund Morgunblaðsins.

Um er að ræða opinn umræðufund­ með Jóni Gn­arr í Ed­in­borg­ar­hús­inu á Ísaf­irði og eru all­ir vel­komn­ir á meðan hús­rúm leyf­ir. Upphaflega átti fundurinn að hefjast klukkan 19.30 en vegna veðurskilyrða seinkaði flugi Jóns örlítð. Fundurinn hefst því laust fyrir klukkan 20. 

Blaðamenn­irn­ir Andrés Magnús­son og Stefán Ein­ar Stef­áns­son munu ræða við Jón um fram­boð hans til embætt­is for­seta Íslands og þá munu fundargestir fá að koma með spurningar úr sal.

Álitsgjafar spá í spilin

Álitsgjafarnir Lilja Rafney Magnúsdóttir og Guðmundur M. Kristjánsson verða auk þess á staðnum til að ræða forsetakosningarnar og spá í spilin.

Þegar hafa Ísfirðingar og nærsveitungar byrjað að fjölmenna í salinn og má búast við líflegum fundi.

Upptaka af borgarafundinum verður birt í fyrramálið inn á mbl.is. 

mbl.is