Jón Gnarr á Ísafirði í kvöld

Jón Gnarr verður á Ísafirði í kvöld.
Jón Gnarr verður á Ísafirði í kvöld. Skjáskot

Morgunblaðið býður í kvöld kl. 19.30 til opins umræðufundar með forsetaframbjóðandanum Jóni Gnarr í Edinborgarhúsinu á Ísaf­irði.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Blaðamenn­irn­ir Andrés Magnús­son og Stefán Ein­ar Stef­áns­son munu ræða við Jón um fram­boð hans til embætt­is for­seta Íslands. 

Gestir geta spurt frambjóðandann

Auk þess munu sér­stak­ir álits­gjaf­ar spá í spil­in, sem að þessu sinni verða þau Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir og Guðmund­ur M. Kristjáns­son. Einnig gefst gest­um úr sal tæki­færi á að beina spurn­ing­um til fram­bjóðand­ans.

Á Ed­in­borg Bistro verða góð til­boð í gangi fyr­ir fund­ar­gesti á meðan á fundi stend­ur. 

Ísfirðingar og nærsveitungar eru hvattir til að mæta. 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert