Al-Qaeda hótar Dönum og Norðmönnum

Í myndbandi, sem birtist á netinu í gærkvöldi, hótar háttsettur félagi í hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda Dönum, Norðmönnum og Frökkum og hvetur múslima til „eyðileggja" þessi lönd í hefndarskyni fyrir að blöð í löndunum birtu skopmyndir af Múhameð spámanni.

Það er Líbýumaðurinn Mohammed Hassan, sem flytur ávarpið en honum tókst að flýja úr bandarísku fangelsi í Afganistan í fyrra ásamt þremur öðrum meintum hryðjuverkamönnum.

„Múslimar. Hefnið spámanns ykkar. Við viljum að landið litla, Danmörk, Noregur og Frakkland hljóti þung högg og verði eyðilögð," segir Hassan í myndbandinu.

„Eyðileggið byggingar þeirra, fáið jörð þeirra til að skjálfa og breytið þeim í blóðhaf," segir Hassan og veifar herriffli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert