„Aðeins annað þeirra kom heim úr skólanum“

Íbúar í bænum Newtown í Connecticut ríki í Bandaríkjunum minntust þess í gær að mánuður var liðinn frá því að byssumaður myrti þar 26 manns, þar af 20 skólabörn, með köldu blóði. 

„Að morgni þess 14. desember fylgdi ég tveimur börnum mínum í skólabílinn,“ sagði Nelbea Marquez, móðir barns sem var myrt þennan dag. „Aðeins annað þeirra kom heim úr skólanum. Ég bið þess að engin móðir, enginn faðir, afi, amma eða annar umönnunaraðili þurfi að upplifa slíkan sársauka.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert