Fjölskyldur fórnarlamba vilja semja við Jones

Alex Jones, samsæriskenningasmiður og stofnandi InfoWars.
Alex Jones, samsæriskenningasmiður og stofnandi InfoWars. AFP/Joe Buglewicz

Fjöl­skyld­ur fórn­ar­lamba í skotárásinni í San­dy Hook-grunn­skól­an­um 2012 hafa áhuga á að semja við samsæriskenningasmiðinn Alex Jones, sem var gert að greiða fjölskyldunum 1,5 milljarða bandaríkjadala (200 milljarða króna) í bætur en lýsti síðan yfir gjaldþroti.

Nýtt tilboð kveður á um að Jones greiði fjölskyldunum að lágmarki 85 milljónir bandaríkjadala árlega á næstu 10 árum (rúmlega 11 milljarðar króna á ári). Nýja tilboð gerir einnig ráð fyrir því að að Jones greiði fjölskyldunum helming af öllum sínum tekjum sem nema a.m.k. 9 milljónum dollara á ársgrundvelli (1,2 milljarða króna).

Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið. Jones viðurkenndi að hann hefði ítrekar farið með ósannar fullyrðingar um andlát fórnarlambanna, sem leiddu til þess að fjölskyldurnar urðu fyrir áreiti.

Gjaldþrota en lifir dýrum lífsstíl

Jo­nes var dæmd­ur til að greiða fjöl­skyld­um fórn­ar­lamba alls 1,5 millj­arða dala. Hann hafði verið dæmd­ur af kviðdómi til að greiða fjöl­skyld­un­um 965 millj­ón­ir dala í októ­ber. Þann 11. nóv­em­ber sl. ákvað dóm­ari máls­ins að þyngja refs­ing­una um 473 millj­ón­ir dala. Í öðru dóms­máli gegn Jo­nes, sem fór fram í Texas, var Jo­nes að auki dæmd­ur til að greiða 50 millj­ón­ir dala til for­eldra sem misstu sex ára son sinn í skotárás­inni.

Jones og fyrirtæki hans, Free Speech Systems, hafa síðan þá sótt um gjaldþrota­skipti en dómari dæmdi í seinasta mánuði að gjaldþrot Jones skyldi ekki hindra hann frá því að borga skuldir sínar til fjölskyldnanna.

Í dómskjölunum segir að lögfræðingar fjölskyldnanna hafi gagnrýnt Jones fyrir að halda áfram „að njóta eyðslusamra lífsstíls síns“ og að hafa „eytt um það bil 900 þúsund dollurum“ síðan hann sótti um gjaldþrotaskipti.

Lögmaður Jones svaraði ekki beiðni BBC um viðtal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert