Nigella: Lífið bragðast vel

Nigella Lawson.
Nigella Lawson. AFP

Sjónvarpskokkurinn Nigella Lawson segir að líf hennar „bragðist nokkuð vel“ þessa dagana en tvö ár eru síðan hún skildi við eiginmann sinn. Hann sást leggja á hana hendur á veitingastað. Nokkru síðar þurftu  þau svo að mæta í dómsal til að útkljá mál gegn fyrrverandi aðstoðarmanni Nigellu.

Nigella er nú að fara gefa út sína tíundu matreiðslubók, Simply Nigella. Bókin kemur út í næsta mánuði og segir Nigella að boðskapur bókarinnar sé einmitt mjög einfaldur, eins og titillinn gefur til kynna.

„Bækurnar mínar hafa alltaf varpað ljósi á hvernig mér líður hverju sinni,“ sagði Nigella í viðtali við Mail on Sunday.

„Svo skilaboðin í Simply Nigellu eru einmitt mjög einföld: Hér er ég núna. Hér er maturinn minn, svona bragðast líf mitt í augnablikinu. Og líf mitt bragðast bara nokkuð vel.“

Tvö ár eru síðan að ljósmyndir af eiginmanni hennar, Charles Saatchi, að taka hana hálstaki á veitingastað birtust opinberlega.

Við réttarhöldin í máli þeirra Nigellu og Saatchi gegn fyrrverandi aðstoðarmanni hennar viðurkenndi hún svo að hafa neytt kókaíns. Þetta hafði m.a. þær afleiðingar að hún missti starf sem dómari í þættinum The Taste. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert