Ekkert bendir til hryðjuverka

Ekki er ljóst hvað olli sprengingunni.
Ekki er ljóst hvað olli sprengingunni. mbl.is/Kristinn

Breska lögreglan segir ekkert benda til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða þegar bygging í borginni Leicester hrundi til grunna eftir sprengingu. Að minnsta kosti fjórir slösuðust.

„Orsök sprengingarinnar verður rannsökuð í sameiningu af lögreglunni og slökkviliðinu í Leicester-skíri,“ sagði lögreglan í yfirlýsingu.

Nærliggjandi götum var lokað vegna sprengingarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert