Selja ekki lyf beint til fangelsa

Lyfið Midazolam sem Alvogen framleiðir er eitt þriggja lyfja sem …
Lyfið Midazolam sem Alvogen framleiðir er eitt þriggja lyfja sem á að nota í við aftöku fanga í fangelsi í Nevada-ríki í kvöld.

„Það er skýr stefna fyrirtækisins að selja ekki lyf sem þessi beint til fangelsismálastofnana og notkun lyfsins er því gegn okkar vilja,“ segir Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri hjá lyfjafyrirtækinu Alvogen.

Til stendur að taka fangann Scott Dozier af lífi síðar í dag í Nevada-ríki í Bandaríkjunum með lyfjablöndu sem aldrei hefur verið notuð áður við aftökur. Forsvarsmenn Alvogen heyrðu fyrst af fyrirhugaðri notkun lyfs, sem fyrirtækið framleiðir, við aftöku, í fjölmiðlum.

„Fyrirtækjamenning Alvogen og öll þróun og markaðssetning lyfja fyrirtækisins hefur það markmið að auka lífsgæði fólks um allan heim og það eru því mikil vonbrigði að yfirvöld í Nevada fyrirhugi að nota lyf fyrirtækisins með ólögmætum hætti,“ segir Halldór.  

Höfuðstöðvar Alvogen eru á Íslandi en fyrirtækið er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með starfsemi í 35 löndum. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja, lausasölulyfja og líftæknilyfja.

Alvogen hefur höfðað mál gegn Nevada-ríki og farið fram á að lög­bann verði sett á notk­un lyfs­ins strax og að Nevada skili lyf­inu inn. Lög­fræðing­ar Al­vo­gen segja að Nevada-ríki hafi út­vegað sér lyf fram­leidd af Al­vo­gen með ólög­mæt­um hætti og á fölsk­um for­send­um. Lögbannsbeiðnin verður tekin fyrir klukkan fjögur að íslenskum tíma í dag. 

Málið er höfðað gegn fang­els­is­mála­stofn­un Nevada, (Nevada Depart­ment of Cor­recti­ons), fram­kvæmda­stjóra stofn­un­ar­inn­ar, James Dzurenda, yf­ir­manni lyfja­mála, Ihs­an Azzam, sem og lækn­in­um sem á að sprauta Dozier með lyfja­blönd­unni við af­tök­una í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert