Þrjár beinagrindur fundust í steinkistunni sem grafin var upp í Alexandríu í Egyptalandi fyrir þremur vikum. Í kistunni var einnig skólp svo lyktin sem gaus upp er kistan var opnuð var næstum óbærileg.
Kistan er 265 sentimetra löng og 165 sentimetra þykk og fannst við byggingaframkvæmdir. Á svipuðum slóðum fannst einnig höfuð höggvið úr mjólkursteini. Kistan er talin sú stærsta sinnar tegundar sem fundist hefur hingað til.
Kistan er úr svörtu graníti og var á um fimm metra dýpi. Talið er að hún hafi ekki verið opnuð síðan hún var sett í jörðina, líklega um árið 35 fyrir Krist, eða fyrir um 2.000 árum.
Er fornleifafræðingar greindu frá fundi kistunnar fóru margir að gæla við þá hugmynd að í henni mætti finna bein Alexanders mikla. Þá vörpuðu aðrir fram þeirri kenningu að álög hvíldu á kistunni og myndu þau koma í ljós er hún yrði opnuð.
Hvorugt reyndist rétt, segir í frétt BBC.
Svo slæmur var óþefurinn úr kistunni að fornleifafræðingarnir sem höfðu lyft lokinu urðu frá að hverfa. Þeir kölluðu því til verkfræðinga hersins svo að opna mætti kistuna og sjá innihald hennar.
„Við fundum bein þriggja manna og þetta virðist vera fjölskylda,“ segir Mostafa Waziri, yfirmaður fornleifastofnunar Egyptalands.
Spurður um sögusagnir um álög á kistunni svarar Waziri: „Við opnuðum hana og, þökk sé guði, þá hefur heimurinn ekki myrkvast.“