436 látnir eftir jarðskjálftann á Lombok

Miklar skemmdir urðu í jarðskjálftanum sem kostaði 436 manns lífið …
Miklar skemmdir urðu í jarðskjálftanum sem kostaði 436 manns lífið hið minnsta. Hundruð þúsunda urðu að yfirgefa heimili sín. AFP

Yf­ir­völd á Indó­nes­íu segja að tala þeirra sem lét­ust í jarðskjálft­an­um sem reið yfir eyj­una Lom­bok um síðustu helgi sé kom­in vel yfir 400 manns. Óttast er að talan eigi enn eftir að hækka, en björgunarsveitir leita nú í húsarústum og aurskriðum sem féllu eftir skjálftann.

„Björgunarsveitir eru enn að grafa látið fólk úr húsarústum og aurskriðum,“ segir Sutopo Purwo Nugroho, talsmaður Almannavarna. Sagði hann tölu látinna nú vera komna upp í 436. Þá hafi rúmlega 1.300 manns slasast í jarðskjálftanum og 353.000 hafi orðið að yfirgefa heimili sín.

Mikill fjöl­di fólks er því enn heim­il­is­laus og víða er skort­ur á hreinu vatni, mat og lyfj­um. Vegir eru víða illa skemmdir eftir skjálftann sem gerir björgunarsveitum erfiðara um vik að koma hjálpargögnum til skila.

Skjálft­inn varð á sunnudaginn í síðustu viku og mældist 6,9 að stærð. Hann jafnaði mörg þúsund heim­ili við jörðu á eyj­unni, en viku áður varð ann­ar stór skjálfti sem varð 17 að bana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka