Upplýsingaóreiða nýtt í þágu refsiaðgerða

AFP

Stjórnvöld í Rússlandi segja að „upplýsingaóreiðuherferð“ vegna meintrar eitrunar stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní sé ætlað að koma á nýjum refsiaðgerðum gagnvart Rússum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Rússlands. 

Tilkynningin er send út í kjölfar yfirlýsingar þýskra ráðherra um að allir möguleikar varðandi refsiaðgerðir verði skoðaðar vegna þess að eitrað hafi verið fyrir Navalní með taugaeitrinu Novichok. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert