Hið minnsta þrjátíu látist í eldunum

Gróðureldar loga í Oregon-ríki.
Gróðureldar loga í Oregon-ríki. AFP

Fleiri en þrjátíu hafa látist í gróðureldum sem geisa víða á vesturströnd Bandaríkjanna. Fjölda er saknað. Tugir þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín. 

Í Oregon-ríki hefur verið varað við því að tugir til viðbótar gætu látist af völdum eldanna. Fjölmörg heimili hafa gjöreyðilagst í eldunum sem geisað hafa í um þrjár vikur. 

Joe Biden, forsetaefni demókrata fyrir forsetakosningarnar í nóvember, sagði í gærkvöldi að „loftslagsbreytingar skapi yfirvofandi hættu á tilvist lífs okkar í þeirri mynd sem við þekkjum“, og sakaði hann Donald Trump Bandaríkjaforseta um að afneita þeim veruleika. 

Forsetinn hyggst heimsækja Kaliforníuríki í vikunni. 

Reykur vegna eldanna hefur gert það að verkum að loftgæði í Portland í Oregon-ríki eru nú þau minnstu í heiminum samkvæmt BBC. 

Í Oregon loga nú 16 eldar og 40.000 íbúar falla undir rýmingaráætlun stjórnvalda. Hið minnsta tíu hafa látist í ríkinu en yfirvöld hafa varað við því að líklegt sé að fleiri séu látnir. Slökkviliðsstjóri ríkisins, Jim Walker, sagði af sér í gærkvöldi, skömmu eftir að hann var settur í launað leyfi vegna rannsóknar á starfsmannahaldi slökkviliðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert