Stephen K. Bannon, fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trumps fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var ákærður fyrir tvö lögbrot í dag að því er New York Times greinir frá.
Bannon er annars vegar ákærður fyrir að hafa ekki sýnt samstarfsvilja þegar hann neitaði að bera vitni í lögreglurannsókn er varðaði innrás í þinghúsið í Washington í janúar síðastliðnum.
Hins vegar er Bannon ákærður fyrir að hafa ekki lagt fram skjöl sem fulltrúadeildin sóttist eftir við rannsókn málsins. Fjölmargir bandamenn Trumps hafa gert slíkt hið sama en Trump hefur einmitt hvatt til þess.