Yfir 1.200 lík hafa fundist

Iryna Venediktova heimsækir bæinn Bútsja þar sem fjöldagrafir hafa fundist.
Iryna Venediktova heimsækir bæinn Bútsja þar sem fjöldagrafir hafa fundist. AFP

Alls hafa 1.222 lík fundist á svæðinu í kringum Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, til þessa.

Iryna Venediktova, ríkissaksóknari Úkraínu, greindi frá þessu.

„Staðan núna í morgun er þannig að 1.222 lík hafa fundist eingöngu á Kænugarðs-svæðinu," sagði Venediktova í viðtali við Sky News.

Úkraínu­menn hafa áður greint frá því að töluvert af líkum al­mennra borg­ara hafi fundist í bæj­um fyr­ir utan Kænug­arð þangað sem rúss­nesk­ar her­sveit­ir hörfuðu. Þeir saka Rússa um stríðsglæpi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert