Verð á hveiti aldrei hærra

Indverjar tilkynntu á laugardaginn að útflutningur á hveiti yrði bannaður …
Indverjar tilkynntu á laugardaginn að útflutningur á hveiti yrði bannaður í landinu. AFP/Money SHARMA

Heimsmarkaðsverð á hveiti er í methæðum eftir að Indverjar tilkynntu bann á útflutningi á hveiti til að sporna við lítilli framleiðslu í ár.

Ákvörðunin var tekin til að tryggja fæðuöryggi í landinu en ásamt lítilli framleiðslu þá spilar mikil hækkun á heimsmarkaðsverði hveitis inn í. 

Í lok markaða Euronext í dag var verð á tonni af hveiti 438,25 evrur eða rétt rúmlega sextíu þúsund krónur. Áður var metið 422,40 evrur fyrir tonnið eða 58,528 krónur.

Hækkunin á hveiti síðustu mánuði hefur haft áhrif á verðbólgu á heimsvísu og gæti haft sérstaklega slæmar afleiðinga í fátækari löndum heimsins.

Á versta mögulega tíma

Indland er það land sem framleiðir næst mest af hveiti í heiminum en þar var marsmánuður sá heitasti frá upphafi mælinga.

Þetta hefur áhrif á hveitiframleiðslu í norðurhluta landsins þar sem áætlað er að framleiðsla minnki um fimm prósent, sem var 109 milljón tonn á síðasta ári.

Tímasetningin gæti ekki verið mikið verri þar sem stríðið í Úkraínu hefur minnkað hveitiframleiðslu þar um þriðjung og heimsmarkaðsverð hefur hækkað um 40 prósent síðan Rússar réðust inn í Úkraínu 24. febrúar. Um tólf prósent útflutnings á hveiti var frá Úkraínu áður fyrr.

Í síðustu viku tilkynntu ráðamenn í Indlandi að þau myndu senda sendinefndir til Egyptalands, Tyrklands og víðar til að ræða aukinn útflutning af hveiti frá Indlandi. Ekki er víst hvort verði af heimsóknunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert