Seldi Nóbelsverðlaunin fyrir 13 milljarða

Dmitrij Muratov við uppboðið.
Dmitrij Muratov við uppboðið. AFP

Dmitrij Muratov, rússneski ritstjóri óháða dagblaðsins Novaya Gazeta, bauð í gær upp gullmedalíu friðarverðlauna Nóbels sem hann hlaut í fyrra ásamt filippseyska blaðamanninum Mariu Ressa. Hæsta boð í medalíuna var 103,5 milljónir dollara, eða það sem nemur rúmum 13 milljörðum íslenskra króna. 

Peningurinn mun renna í hjálparstarf UNICEF fyrir börn sem eru á flótta vegna stríðsins í Úkraínu.

Muratov og Ressa fengu verðlaunin fyrir „viðleitni til að standa vörð um tjáningarfrelsið“.

Uppboðshaldarinn hefur ekki gefið upp hver festi kaup á verðlaununum.

Gullmedalían sem um ræðir.
Gullmedalían sem um ræðir. AFP

Stalín leysti það mál með hreins­un­um

Í umfjöllun mbl.is um verðlaunaafhendinguna í fyrra segir um Muratov:

Muratov rit­stýr­ir óháða blaðinu Novaja Gazeta, sem kem­ur út tvisvar í viku, en því var komið á fót árið 1993 og hef­ur rit­stjórn­ar­stefna þess sjaldn­ast þókn­ast rúss­nesk­um stjórn­völd­um. Meðal blaðamanna Novaja Gazeta var Anna Polit­kovskaja heit­in, sem var skot­in til bana í lyftu fjöl­býl­is­húss­ins er var heim­ili henn­ar í Moskvu á haust­dög­um 2006, en hún hafði þá meðal ann­ars fært frétt­ir af mann­rétt­inda­brot­um rúss­neskra her­manna og ör­ygg­is­sveita í Tétsn­íu.

Boðið í verðlaunin á mánudag.
Boðið í verðlaunin á mánudag. AFP

„Við erum blaðamenn og verk­efni okk­ar er skýrt – að greina staðreynd­ir frá hind­ur­vitn­um,“ sagði Muratov í ræðu sinni. „Hin nýja kyn­slóð blaðamanna veit hvernig hún á að vinna með gríðargögn [e. big data] og gagna­grunna [...] Fólkið fyr­ir ríkið eða ríkið fyr­ir fólkið? Það er helsta þrætu­epli nú­tím­ans. Stalín leysti það mál með hreins­un­um,“ sagði hann enn frem­ur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert