Á samfélagsmiðlinum Twitter hafa birst þó nokkur myndbönd af árásarmanninum sem skaut nokkra til bana í Field's í Kaupmannahöfn í Danmörku í dag.
Í fyrsta myndskeiðinu hér fyrir neðan má heyra fjóra skothvelli og ringulreiðina sem tók við eftir að maðurinn hafði hleypt af.
Maðurinn sem skaut í átt að fólkinu er 22 ára Dani og hefur verið handtekinn. Hann er nú í haldi lögreglu.
Við vörum viðkvæma við myndefninu.
Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá hvar byssumaðurinn stillir sér upp með byssuna áður en hann hleypur öskrandi með byssuna í hönd.