Friðargæsluliðar látnir eftir mótmæli í Kongó

Frá mótmælunum í Kongó í dag.
Frá mótmælunum í Kongó í dag. AFP/Michael Lunanga

Þrír friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna SÞ og sjö mótmælendur hafa látist í mótmælum gegn SÞ í bænum Butembo í austurhluta Kóngó í dag.

Voru það tveir indverskir ríkisborgarar og einn frá Marokkó í friðargæslusveitinni Monusco sem létu lífið, að sögn Paul Ngoma, lögreglustjóra í Butembo.

Mótmæli brutust út í gær vegna ásakana um að friðargæslusveitin hafi ekki verið að beita sér gegn vopnuðum hópum á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert