„Ég er baráttukona“

Liz Truss á þinginu í morgun.
Liz Truss á þinginu í morgun. AFP

Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, sagðist ekki ætla að segja af sér embætti í fyrirspurnartíma á breska þinginu í morgun.

Þar svaraði hún spurningum um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hætta við fyrirhugaðar skattalækkanir.

„Af hverju er hún enn hérna?“ spurði Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins. Truss svaraði þá: „Ég er baráttukona, ekki manneskja sem gefst upp og hættir“.

Keir Starmer.
Keir Starmer. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert