Hol­mes þarf að hefja af­plánun í mánuðinum

Elizabeth Holmes, forstjóri Theranos, var aðeins 19 ára þegar hún …
Elizabeth Holmes, forstjóri Theranos, var aðeins 19 ára þegar hún stofnaði fyrirtækið. Hún má ekki eiga, reka eða stjórna tilraunastofu næstu tvö árin. AFP

Elizabeth Holmes, stofnandi blóðprufufyrirtækisins Theranos, hefur verið skikkuð til þess að sitja í fangelsi meðan á áfrýjun máls hennar stendur. Holmes var meðal annars sakfelld fyrir það að blekkja fjárfesta og hlaut ellefu ára fangelsisdóm.

Vegna þessarar niðurstöðu mun Holmes hefja afplánun sína í þessum mánuði. Að baki liggur sú ástæða að dómarinn í málinu telur ólíklegt að dómnum verði snúið við að fullu og ný réttarhöld boðuð. Þá er ekki talin hætta á því að hún reyni að flýja land. CNN greinir frá.

Greint var frá því í janúar að bandarísk stjórnvöld hefðu talið Holmes hafa reynt að flýja land. Dómarinn í málinu hefur þó fallist á þá útskýringu að Holmes hafi trúað því að hún yrði ekki sakfelld og hafi ætlað sér að mæta í brúðkaup vina í Mexíkó.

Holmes stofnaði blóðprufufyrirtækið Theranos árið 2003 þegar hún var nítján ára gömul. Fyrirtækið var eitt sinn metið á níu milljarða bandaríkjadala en því var haldið fram að mögulegt væri að greina alls kyns sjúkdóma með örfáum blóðdropum. Þær staðhæfingar reyndust síðar ekki á rökum reistar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert