Trump sekur um kynferðisbrot

E. Jean Carroll yfirgefur alríkisdómstólinn á Manhattan eftir að lyktir …
E. Jean Carroll yfirgefur alríkisdómstólinn á Manhattan eftir að lyktir málsins urðu ljósar. AFP

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hefur verið fundinn sekur um kynferðisbrot gegn blaðamanninum E. Jean Carroll.

Þetta er niðurstaða kviðdóms í New York í einkamáli Carroll gegn Trump. Samkvæmt dóminum þarf Trump að greiða Carroll 5 milljónir bandaríkjadala, eða um 680 milljónir íslenskra króna.

Einnig sekur um meiðyrði

Forsetinn var einnig fundinn sekur um meiðyrði í garð Caroll frá því í október árið 2022. Fyrir það þarf hann að greiða 280 þúsund bandaríkjadali í bætur, eða rúmlega 38 milljónir íslenskra króna.

Trump var ekki fundinn sekur um nauðgun, eins og sóst var eftir, heldur um kynferðislega misnotkun.

Carroll kærði Trump fyrir að hafa nauðgað sér í mát­un­ar­klefa í versl­un Bergdorf Goodm­an árið 1996. Ásakanirnar komu fyrst fram árið 2019 þegar ný lög voru síðan samþykkt í New York sem gáfu þolend­um kyn­ferðisof­beld­is árs lengri tíma til þess að kæra gerend­ur sína.

Það tók kviðdóminn aðeins nokkrar klukkustundir að komast að niðurstöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert