Tuttugu særðir eftir árás á Dnípró

Dnípró. Mynd úr safni.
Dnípró. Mynd úr safni. AFP/Mikhailo Moskalenko

Tuttugu eru særðir eftir loftárás á miðborg Dnípró í Úkraínu. Viðbragðsaðilar leita nú að fólki sem óttast er að hafi grafist undir rústir bygginga. 

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir loftárásina á Dnípró hafa verið viljaverk Rússa en þeir hafa ekki lýst yfir ábyrgð. Frá því að innrásarstríðið hófst hafa þeir almennt neitað ásökunum um árásir á almenna borgara. BBC greinir frá.

Þrjú börn alvarlega særð

Eldar brutust út í norðurhluta Dnípró í kjölfar árásarinnar. 

20 særðust í árásinni, þar af fimm börn, eru þrjú alvarlega særð. Alls voru sautján fluttir á sjúkrahús. 

Þá var einnig tilkynnt um sprengingar á öðrum svæðum í Úkraínu í dag.

Í Súmí héraði heyrðust 87 sprengingar. Þá heyrðust ríflega tíu sprengingar í Berdjansk og Melítópol í suðurhluta Úkraínu. Litlar upplýsingar hafa fengist um þær árásir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert