Tate-bræðrum sleppt úr stofufangelsi

Andrew og Tristan Tate segja engan fót fyrir ásökunum lögreglu …
Andrew og Tristan Tate segja engan fót fyrir ásökunum lögreglu í Rúmeníu. AFP/Daniel Mihailescu

Umdeilda áhrifavaldinum Andrew Tate hefur verið sleppt úr stofufangelsi í Rúmeníu en hann hefur verið ákærður fyrir mansal og nauðgun. Bróður hans Tristan Tate var einnig sleppt.

Þrátt fyrir að bræðurnir séu ekki lengur í stofufangelsi eru þeir ekki frjálsir ferða sinna en þeir mega ferðast um Búkarest og svæðið í kringum heimili sitt skammt frá borginni.

BBC greinir frá.

Þar að auki kemur fram að þeim sé bannað að hafa samband við aðra sakborninga í málinu, vitni og meint fórnarlömb sín. Þá þurfi þeir einnig að svara kalli lögreglu þegar það berst ásamt fleiru en brjóti þeir reglurnar verði þeir aftur settir í stofufangelsi.

Bræðurnir voru handteknir í Rúmeníu þann 30. desember og hafa síðan neitað sök í málinu.

Andrew Tate er vel þekkt­ur á sam­fé­lags­miðlum og hef­ur verið bannaður á þeim mörg­um en hann hef­ur gjarn­an deilt skoðunum sem ein­kenn­ast af kven­h­atri og eitraðri karl­mennsku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert