Ákærður fyrir nauðgun og mansal

Bræðurnir Andrew og Tristan Tate.
Bræðurnir Andrew og Tristan Tate. AFP/Daniel Mihailescu

Umdeildi áhrifavaldurinn Andrew Tate hefur verið ákærður í Rúmeníu fyrir nauðgun, mansal og skipulagða glæpastarfsemi. Bróðir hans Tristan Tate og tveir félagar þeirra eiga einnig yfir höfði sér ákæru. 

Þessu greinir BBC frá. Tate-bræðurnir voru fyrst handteknir á heimili þeirra í Búkarest í desember síðastliðnum, en í mars voru þeir færðir úr gæsluvarðhaldi í stofufangelsi. 

Stofnuðu glæpahóp fyrir mansal

Í ákærunni sem lögð var fyrir dómstól í Búkarest kemur fram að sakborningarnir fjórir hafi stofnað skipulagðan glæpahóp árið 2021 til þess að misnota konur kynferðislega í Rúmeníu, Bandaríkjunum og Bretlandi. 

Þá eru sjö meint fórnarlömb nefnd í ákærunni sem segja Tate-bræðurna hafa lokkað sig til sín með fölskum loforðum um ást og hjónaband. Sakborningarnir eru sagðir hafa flutt meint fórnarlömb í byggingar í Ilfov-sýslu í Rúmeníu þar sem þeim var hótað, höfð undir stöðugu eftirliti og þvinguð til skulda. 

Sakborningarnir eru einnig sagðir hafa neytt konurnar til að taka þátt í klámi sem síðar var deilt á samfélagsmiðlum. Þá er einn þeirra sakaður um að hafa nauðgað konu tvisvar í mars 2022.

Réttarhöldin hefjast ekki strax og búist er við að þau muni taka nokkur ár. Sakborningarnir hafa allir neitað ásökunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson