100 þúsund flúið Nagornó-Kara­bak

Talið er að um 120 þúsund Armenar hafi búið í …
Talið er að um 120 þúsund Armenar hafi búið í Nagornó-Kara­bak áður en Aser­ar hrifsuðu héraðið til sín í hernaðaraðgerðunum. AFP/Alain Jocard

Rúmlega 100 þúsund manns hafa flúið fjallahéraðið Nagornó-Kara­bak að sögn armenskra stjórnvalda eft­ir að her­sveit­ir Aser­baíd­sj­ans náðu völd­um þar í síðustu viku.

Nazeli Baghdasaryan, talsmaður armenska forsætisráðherrans, greindi frá því að 100.417 flóttamenn hafi farið yfir landamærin á síðustu tíu dögum. 

Armenskir flóttamenn.
Armenskir flóttamenn. AFP/Alain Jocard

Talið er að um 120 þúsund Armenar hafi búið í Nagornó-Kara­bak áður en Aser­ar hrifsuðu héraðið til sín í hernaðaraðgerðunum. Héraðið hef­ur verið und­ir stjórn Armena und­an­farna þrjá ára­tugi. Allar opinberar stofnanir héraðsins verða leystar upp frá og með 1. janúar. 

Artak Beglaryan, sem var áður embættismaður í héraðinu, greindi frá því á samfélagsmiðlum að „síðustu íbúar“ héraðsins myndu yfirgefa héraðið í dag. 

Hann sagði að einungis nokkur hundruð Armena yrðu eftir, flestir þeirra væru embættismenn, viðbragðsaðilar og sjálfboðaliðar. 

AFP/Alain Jocard
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert