Fórnarlömb mannskæðrar árásar jörðuð

Fjölskyldur fórnarlamba söfnuðust saman í Homs í morgun.
Fjölskyldur fórnarlamba söfnuðust saman í Homs í morgun. AFP/Louai Beshara

Að minnsta kosti 89 manns eru látnir, þar á meðal fimm börn, og 277 til viðbótar eru særðir eftir drónaárás sem var gerð á herskóla í sýrlensku borginni Homs í gær.

Sýrlenskur ríkisfjölmiðill greindi frá þessu.

Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights segja að 123 hafi látist, þar af 54 almennir borgarar, og að minnsta kosti 150 hafi særst.

AFP/Louai Beshara

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni en sýrlenski herinn hefur sakað „vopnuð hryðjuverkasamtök” um ódæðið.

Fjölskyldur og embættismenn söfnuðust saman í Homs í morgun við upphaf fyrstu jarðarfara þeirra sem létust.

„Ekki fara elskan mín,” grét svartklædd kona með hvít blóm sem missti son sinn í árásinni.

„Þessi svefn hentar þér ekki.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert