Helsti ráðgjafi Hisbollah sá sem ráðinn var af dögum

Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah-samtakanna, minnist Mohammad Reza Zahedi, sem lést …
Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah-samtakanna, minnist Mohammad Reza Zahedi, sem lést í byrjun mánaðar. Skjáskot/irna.ir

Íranski hershöfðinginn, sem lést í loftárás 1. apríl á sendiráð Írans í Damaskus, átti sæti í Shura-ráði Hisbollah-samtakanna, sem stjórnar helstu aðgerðum þeirra.

Alls létust sjö úr sveitum íranskra byltingarvarða þegar ráðist var á sendiráð Írans. Voru tveir hershöfðingjar í þeirra hópi.

Ísraelar sagðir bera ábyrgð

Einn af þeim sem féllu var Mohammad Reza Zahedi, sem er háttsettur í Quds-sveitunum, en þær fara fyrir erlendum aðgerðum íranska byltingarvarðsveitanna.

Zahedi var sá eini sem ekki var líbanskur í æðstaráði Hisbollah-sveitanna. Shura-ráðið er pólitísk yfirstjórn vígasveitanna, en þar er æðstur Hassan Harallah. Nasrallah ávarpaði sveitir sínar í dag vegna loftárásanna.

Stjórnvöld í Sýrlandi og Íran hafa bæði sakað Ísraela um að bera ábyrgð á árásinni.

Zahedi hafði starfað lengi með Hisbollah-samtökunum

Áður hefur verið haft eftir Nasrallah að Hisbollah-samtökin eigi Zahedi mikið að þakka. Zahedi „bjó með okkur í mörg ár, fjarri kastljósinu og var þjónusta hans við andspyrnuhreyfinguna í Líbanon og víðar ómæld,“ sagði Nasrallah í sjónvarpsávarpi á föstudag.

Zahedi, sem var 63 ára þegar hann lést, hafði gegnt ýmsum áhrifastöðum innan íranska byltingarvarðsveitanna í nær fjóra áratugi. Telst hann hátt settasti yfirmaður í íranska hernum til að vera drepinn frá því að Bandaríkjamenn drápu Quasem Soleimani hershöfðingja í loftárás á flugvöllinn í Bagdad árið 2020. Soleimani fór fyrir Quds-sveitunum þegar hann féll.

Stjórnvöld í Teheran hafa heitið því að svara fyrir árásina á sendiráðið. Alls létust 16 manns í árásinni og eru tveir almennir borgarar taldir í þeim hópi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert