John Turscak, fyrrverandi undirheimaleiðtogi og uppljóstrari alríkislögreglu Bandaríkjanna, stakk Derek Chauvin 22 sinnum í fangelsi í Tuscon í Arizona í síðasta mánuði.
Turscak sagði árásina til komna vegna morðsins á George Floyd.
Þá sagði Turscak að hann hefði líklegast myrt Chauvin, hefðu fangaverðir ekki stöðvað hann.
Turscak sætir fangelsisvistar til 30 ára fyrir glæpi sem hann framdi í slagtogi við mexíkóskt glæpagengi á sínum tíma.
Turscak er sakaður um að hafa ráðist á Chauvin með heimatilbúnum hnífi á bókasafni fangelsisins á svokölluðum Svörtum föstudegi. Turscak sagði val hans á degi táknrænt og vísaði til „Black Lives Matter“ hreyfingarinnar, sem spratt upp eftir morðið á George Floyd.
Turscak sagðist hafa hugsað um að ráðast á Chauvin um mánuði áður en hann lét verða af því, en að ætlunin hafi ekki verið að myrða hann.
Fangelsisvist Turscak átti að renna út 2026, en í ljósi árásarinnar á Chauvin má vænta að hann verði vistaður til lengri tíma.