17 þúsund drepnir á Gasasvæðinu

Faðir hins tveggja ára Muhammad Saleh Farhat, syrgir barnið sitt …
Faðir hins tveggja ára Muhammad Saleh Farhat, syrgir barnið sitt á al-Najjar-sjúkrahúsinu í Rafah á suðurhluta Gasasvæðisins í gær. AFP/Said Khatib

Alls hafa 17 þúsund manns verið drepnir á Gasasvæðinu, aðallega konur og börn.

Heilbrigðisráðuneyti svæðisins, sem er rekið af Hamas-samtökunum, greindi frá þessu.

Ísraelsher hélt í morgun áfram sókn sinni í kringum helstu borgir Gasasvæðisins. Rúmir tveir mánuðir eru liðnir síðan liðsmenn Hamas fóru yfir ísraelsku landamærin og drápu um 1.200 manns og tóku gísla. 138 þeirra eru enn í haldi, að sögn Ísraela.

Ísraelskir hermenn á Gólanhæðum.
Ísraelskir hermenn á Gólanhæðum. AFP/Jalaa Marey

Ísraelar brugðust við með því að gera umfangsmiklar loftárásir á Gasasvæðið og ráðast þangað inn með þeim afleiðingum að 17 þúsund manns hafa fallið.

Joe Biden Bandaríkjaforseti lagði í gær áherslu á það í símaspjalli við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, að vernda almenna borgara í átökunum við Hamas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert