Segist ætla opna fyrir aðgang Alex Jones

Elon Musk og Alex Jones.
Elon Musk og Alex Jones. Samsett mynd/AFP/Mandel Ngan/Joe Buglewicz

Auðkýfingurinn Elon Musk segist ætla að opna aftur fyrir aðgang sam­særis­kenn­inga­smiðsins Alex Jo­nes á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter. 

Musk bjó til könnun þar sem notendur voru spurðir hvort þeir vildu fá Jones aftur á miðilinn. Um 70% kjósenda vildu fá Jones aftur á X. 

Jones er hvað þekktastur fyrir að hafa ítrekað farið með ósann­ar full­yrðing­ar um and­lát fórn­ar­lambanna í skotárásinni í San­dy Hook-grunn­skól­an­um 2012.

20 börn og sex fullorðnir létust í árásinni og sagði Jones að árásin hafi verið „tilbúningur“. Honum var gert að greiða aðstandendum fórnarlambanna 1,5 millj­arða banda­ríkja­dala í bæt­ur af dómstólum þar sem að fjölskyldur fórnarlambanna þurftu að þola áreitni og hótanir í kjölfar ummæla Jones.

Aðgangi Jones að Twitter var eytt árið 2018 eftir brot á reglum um hegðun. 

BBC greinir frá því að eftir að Musk keypti samfélagsmiðilinn í október í fyrra neitaði hann að opna aftur fyrir aðgang Jones þrátt fyrir ákall stuðningsmanna hans. 

Í gær bjó Musk hins vegar til áðurnefnda skoðanakönnun. Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fékk aftur aðgang að X með sama hætti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert