Sjá ekki fyrir sér að senda hermenn til Úkraínu

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, segist ekki sjá fyrir sér að …
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, segist ekki sjá fyrir sér að senda hermenn til Úkraínu. AFP/Henrik Montgomery

Svíar sjá ekki fyrir sér að senda hermenn til Úkraínu til að berj­ast á jörðu niðri gegn Rúss­um.

„Það er ekki á planinu þessa stundina,“ sagði Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, í samtali við sænska ríkisútvarpið SVT í dag. 

Með ummælunum var Kristersson að bregðast við ummælum Emm­anu­el Macron Frakk­lands­for­seta sem sagði í gær að vestrænir leiðtogar ættu ekki að útiloka að senda hermenn til Úkraínu til að berjast á jörðu niðri og aðstoða þannig Úkraínu við að sigra innrásarher Rússa.  

„Í augnablikinu erum við á fullu að senda háþróaðan herbúnað til Úkraínu,“ sagði Kristersson.

Ekki í þágu vestrænna ríkja að senda hermenn til Úkraínu

Þá segir Dmi­try Peskov, talsmaður stjórn­valda í Kreml, það ekki í þágu vestrænna ríkja að senda hermenn til Úkraínu. 

„Þetta er alls ekki í þágu þessara landa, þau ættu að vera meðvituð um það,“ sagði Peskov þegar hann var spurður út í ummæli Macron. Pescov bætti því þó við að umræða um að senda hermenn til Úkraínu væri „mjög mikilvægur nýr þáttur“ í umræðunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert