Einn er látinn eftir að leitar- og björgunarþyrla hrapaði vestur við eyjuna Sotra í Noregi í gærkvöldi.
Einn er í lífshættu, annar alvarlega slasaður og þrír minna slasaðir, að sögn Verdens Gang.
Þyrlan hrapaði laust fyrir klukkan 20 að staðartíma í gærkvöldi, eða klukkan 19 að íslenskum tíma, á meðan hún var í æfingarflugi.
Þyrlan hélt af stað frá bænum Bergen klukkan 18.24 í gær og lauk æfingu með flutningaskipi á Oseberg, olíu- og gassvæðinu, um klukkustund síðar, að sögn norska ríkisútvarpsins.
Fengu bátar á svæðinu tilmæli um að leita að þyrlu sem stefndi í átt að vatnsyfirborði, en þyrlan var búin neyðarsendi sem virkjast sjálfkrafa er hann snertir vatn. Sendirinn sendir út stöðugt útvarpsmerki á 406 MHz tíðni og gerði þar með aðalbjörgunarstöðinni viðvart og kleift að finna þyrluna.
Tvær sjúkraflugvélar og björgunarþyrla frá norska hernum, SAR Queen, fóru á staðinn og hófu björgunaraðgerðir. Talið er að þyrlan hafi verið í sjónum í um 50 mínútur.