Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa nýta sér vandræði Úkraínu þegar kemur að loftvörnum með því að efna til „grimmilegra” árása á bæi og borgir í víglínunni.
„Rússneskir hryðjuverkamenn notfæra sér þá staðreynd að Úkraínu skortir enn nægilegar loftvarnir og getuna til að eyðileggja eldflaugakerfi nákvæmlega þar sem þau eru staðsett – skammt frá landamærum okkar,” sagði Selenskí í tilkynningu á samfélagsmiðli.
Að minnsta kosti fimm fórust í árásum Rússa á borgina Karkív í austurhluta Úkraínu í morgun.
Rússar segjast hafa náð á sitt vald þorpinu Andriivka í Dónetsk-héraði í austurhluta Úkraínu. Þar hafa hersveitir Úkraínu verið í vanda staddar vegna skorts á hermönnum og skotvopnum.