ICJ skipar Ísrael að stöðva innrásina í Rafah

Alþjóðadómstóllinn er æðsti dómstóll Sameinuðu þjóðanna.
Alþjóðadómstóllinn er æðsti dómstóll Sameinuðu þjóðanna. AFP

Alþjóðadóm­stóllinn hefur skipað Ísrael að stöðva innrás sína inn á Rafah á sunnanverðri Gasaströndinni þegar í stað. Ísraelskir ráðherrar munu funda um næstu skref.

Dómstóllinn vill að opnað verði fyrir flutning hjálpargagna í gegnum Rafah-landamærin.

Þetta kom fram í máli Nawaf Salam, forseta dómstólsins, er hann kvað upp bráðabirgðaúrskurð í máli Suður-Afr­íku gegn Ísra­el. Breska ríkisútvarpið greinir frá.

Þá segir, að Ísrael eigi einnig að sjá til þess að eftirlitsmenn geti rannsakað aðstæður á Gasaströndinni, þar sem stríð hefur nú geisað í 7 mánuði. Auk þess krefst Alþjóðadómstóllinn að Ísraelsmenn skili inn skýrslu innan mánaðar þar sem greint er frá því hvernig gengið hefur að fylgja þessum fyrirmælum.

Nawaf Salam, forseti Alþjóðadómstólsins.
Nawaf Salam, forseti Alþjóðadómstólsins. AFP

Skora á Hamas að sleppa gíslunum þegar í stað

Suður-Afríka hafði stefnt Ísrael fyr­ir dómstólinn og sakað Ísraelsmenn um brot gegn lög­um um þjóðarmorð í stríðsrekstri Ísraels á Gasaströndinni.

Alþjóðadómstóllinn er æðsti dómstóll Sameinuðu þjóðanna og getur kveðið upp lagalega bindandi úrskurði í deilum milli ríkja. Dómstóllinn hefur aftur á móti lítil úrræði til að framfylgja úrskurðum sínum.

Alþjóðadómstóllinn skoraði einnig á Hamas-samtökin að sleppa öllum gíslum sínum úr haldi þegar í stað, og sagði Salah það vera mikið áhyggjuefni hversu margir væru enn í haldi samtakanna eftir 7. október. Úrskurður dómstólsins í dag snerist hins vegar um það hvort Ísrael væri að fremja þjóðarmorð eða ekki.

Vilja útrýma Hamas

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur kallað fleiri ráðherra á sinn fund til að ræða tilskipun ICJ, að sögn AFP.

Fjármálaráðherrann Bezalel Smotrich, sem er talinn mjög til hægri í ísraelskum stjórnmálum, brást við á X, áður Twitter, og skrifaði að „sagan mun dæma þá sem stóðu í dag við hlið nasistanna í Hamas Daes.“

Ísraelsher hefur sagt að eitt helsta markmið sitt sé að útrýma Hamas-hryðjuverkasamtökunum til að hefna sín á árásinni þann 7. október, þar sem um 1.200 manns voru drepnir og um 250 teknir í gíslingu.

Ísrael segir að innrás í Rafah sé lykilatriði í því verkefni.

Áætlað hefur verið að um 36 þúsund manns hafi fallið í innrás Ísraelsmanna á Gasasvæðinu. Innrásin hefur orðið til þess að fjöldi Palestínumanna hefur flúið suður. Borgin Rafah er á syðsta hluta strandarinnar.

Þúsundir manns á vergangi hafa þurft að flýja Rafah undanfarnar …
Þúsundir manns á vergangi hafa þurft að flýja Rafah undanfarnar vikur vegna innrásar Ísraels inn í borgina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert