Tólf Íslendingar sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar …
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. mbl.is/Kristinn

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Garðar Gíslason hæstaréttardómari var sæmdur stórriddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín í opinbera þágu.

Ellefu voru sæmdir riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu: Bjarnfríður Leósdóttir, Akranesi, fyrir störf að verkalýðs- og félagsmálum, Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, fyrir framlag til íslenskra bókmennta, Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, fyrir störf í þágu háskólamenntunar, Gunnar Marel Eggertsson, skipstjóri og skipasmiður, fyrir framlag til kynningar á landafundum og siglingum til forna, Gunnar Þórðarson, tónlistarmaður, fyrir framlag til íslenskrar tónlistar, Hildur Hálfdanardóttir, Kópavogi, fyrir störf að mannúðarmálum, Ingibjörg Haraldsdóttir, þýðandi og rithöfundur, fyrir störf í þágu bókmennta, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, fyrir störf í þágu vísinda og viðskipta, Matthías Andrésson, tollvörður og tréskurðarlistamaður, fyrir störf í þágu íslensks handverks, Sigrún Oddsdóttir, Garði, fyrir störf í þágu bindindis- og félagsmála og Stella Guðmundsdóttir, fyrrverandi skólastjóri, fyrir störf í þágu mennta og fræðslu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert