Leitin að Sri Rhamawati stórefld

Kafarar sérsveitar ríkislögreglustjóra koma upp úr sjónum eftir að hafa …
Kafarar sérsveitar ríkislögreglustjóra koma upp úr sjónum eftir að hafa kafað í víkinni þar sem hinn grunaði segist hafa varpað líkinu í sjóinn. mbl.is/Júlíus

Leitin að Sri Rhamawati verður stórefld í dag við Kjalarnes. Í gær leituðu 130 björgunarmenn á þeim slóðum en á útfiri um klukkan 18 í kvöld verður bætt í leitina af sjó og munu bætast við fleiri bátar og björgunarskip. Ætlunin er að senda á leitarflokka í eyjar og sker í Kollafirðinum en einnig verður leituð áfram strandlengjan út frá Hofsvík inn að Mosfellsbæ og í átt að Hvalfjarðargangamunnanum.

Fyrrverandi sambýlismaður Sri Rhamawati hefur viðurkennt að hafa varpað líki hennar fram af klettum við Hofsvík á Kjalarnesi. Sýndi hann lögreglu staðinn í gærkvöldi.

Í gærkvöldi leituðu 130 björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar að Sri Rhamawati við Hofsvík á Kjalarnesi. Leituð var öll strandlengjan frá Kjalarnesi inn að botni Kollafjarðar bæði af sjó og landi. Þá voru björgunarsveitarmenn í flotgöllum sendir í sker á svæðinu þar sem þeir leituðu í þara gróðri. Við leitina voru notaðir 19 jeppar, 1 björgunarskip, 5 bátar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert