Ráðherrar ræddu um stöðu Vestfjarða

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, og Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra, sem báðir eru þingmenn Norðvesturkjördæmis, áttu með sér fund í félagsmálaráðuneytinu í morgun þar sem þeir fóru meðal annars yfir stöðu atvinnumála á Vestfjörðum sem verið hafa í brennidepli undanfarið.

Fram kemur á heimasíðu samgönguráðuneytisins, að þeir Sturla og Magnús hafi sérstaklega fjallað um atvinnuástandið á Flateyri í ljósi þess að fiskiðjufyrirtækið Kambur hafi ákveðið að hætta starfsemi sinni. Fundurinn hafi einnig verið liður í að undirbúa fyrirhugaðan fund með öllum þingmönnum Norðvesturkjördæmis um stöðuna.

Einnig ræddu ráðherrarnir ýmis önnur málefni kjördæmisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert